Sláturhúsið Hellu hækkar verð á nautgripakjöti

Sláturhúsið Hellu hf hækkar verð á A flokkum um 2 kr/kg frá og með deginum í dag, mánudeginum 14. maí. Þá falla þyngdarflokkar í úrvalsflokkum út og kostnaður við flutning gripa í sláturhús verður breytilegur.
Landssamband kúabænda hefur uppfært verðskrár sláturleyfishafa á vef sínum.

Sjá nánar:
Verðskrá yfir nautgripakjöt hjá sláturleyfishöfum


back to top