Skráningar á kynbótasýningar vorsins

Fréttatilkynning frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.

Í dag 15. apríl var opnað á skráningar á allar kynbótasýningar vorsins þannig að nú ættu menn ekki að þurfa að vera á síðustu stundu að skrá. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins www.rml.is en þar er valmynd á forsíðunni „skrá á kynbótasýningu“. 

Á sömu heimasíðu undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar má finna leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu. Síðasti skráningardagur er að jafnaði viku fyrir sýningu (oftast á föstudegi), nema í þeim tilfellum þar sem sýning fyllist þá lokast sjálfkrafa á sýninguna, þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Lena Reiher og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

     
     
     
     

Dags. Staður Loka skráningar- og greiðsludagur
29.4-3.5 Skagafjörður Föstudagur 19. apríl
6.5- 10.5 Selfoss Föstudagur 26. apríl
13.5-17.5 Víðidalur Föstudagur 3. maí
15.5-17.5 Akureyri Þriðjudagur 7. maí
21.5-24.5 Sörlastaðir Föstudagur 10. maí
21.5-24.5 Hvammstangi Föstudagur 10. maí
27.5-31.5 Selfoss Föstudagur 17. maí
27.5-31.5 Skagafjörður Föstudagur 17. maí
27.5-28.5 Hornafjörður Föstudagur 17. maí
29.5-31.5 Stekkhólmi Þriðjudagur 21. maí
3.6-7.6 Melgerðismelar Föstudagur 24. maí
3.6-14.6 Hella Föstudagur 24. maí
10.6-14.6 Miðfossar Föstudagur 31. maí

 

 

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu. 

Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 13.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og  rml@rml.is . Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. 

Minnum á að ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt og allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.

 

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og  rml@rml.is.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf.

 

 

 


back to top