Skráning á ræktun matjurta

Á vef Matvælastofnunar mast.is er tilkynning til ræktenda matjurta um að skrá starfsemi sína hjá stofnuninni.  Matjurtarækt getur bæði verið innirækt eða útiræktun, með útiræktun er líka átt við ræktun á korni til manneldis en slík ræktun telst til frumframleiðslu.  Stofnunin hvetur ræktendur til að vera búin að skrá starfsemi sína eigi síðar en 15. janúar 2014 í gegnum þjónustugátt stofnunarinnar.  

Nánar má lesa um skráningu matvæla á mast.is,  eða slóð beint á þjónustugátt.


back to top