Sigurborg Daðadóttir er nýr yfirdýralæknir

Sigurborg Daðadóttir hefur verið skipuð í Embætti yfirdýralæknis að því er fram kemur í tilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Sigurborg er dýralæknir frá Tieräztlich Hocschule í Hannover og hefur auk þess lokið námi í rekstrar- og viðskiptafræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.
Sigurborg hefur starfað hjá Matvælastofnun frá árinu 2008 sem gæðastjóri og forstöðumaður áhættumats- og gæðastjórnunarsviðs.


back to top