Síðsumarsýning kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum

Síðsumarsýning kynbótahrossa verður á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 13. til 24. ágúst. Ef ekki mætir sá fjöldi sem reiknað er með verður dögum fækkað. Tekið verður við skráningum 7. og 8. ágúst í síma 480-1800. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambandsins, www.bssl.is, þegar hefur verið opnað á skráningu þar.
Ganga verður frá greiðslu eigi síðar en miðvikudaginn 8. ágúst, hafi greiðsla ekki borist á tilsettum tíma er hrossið ekki skráð til sýningar. Sýningargjaldið er hægt að greiða inn á reikning 0152-26-1618, kt. 490169-6609. Sýningargjaldið er 18.500 kr. fyrir fullnaðardóm en 13.500 kr. ef hrossið mætir einungis í byggingar- eða hæfileikadóm. Greiðslur þarf að merkja með númeri og nafni hrossa. Ef greitt er í gegnum netbanka vinsamlegast sendið greiðslukvittun á netfangið helga@bssl.is.

Endurgreiðsla á sýningargjöldum kemur aðeins til greina ef látið er vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu. Þannig ef sýning hefst á mánudegi þarf að vera búið að afskrá hrossið á föstudegi fyrir lokun skrifstofu. Ekki er um fulla endurgreiðslu að ræða heldur einungis 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í fullnaðardóm en 8.000 kr. fyrir þau hross sem hafa einungis verið skráð í byggingar- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er hægt að framvísa læknisvottorði til að fá endurgreiddan hluta af sýningargjaldi. Þeir sem telja sig eiga rétt á endurgreiðslu þurfa að ganga eftir þeim fyrir 1. október 2012. Þegar hross er afskráð er best að gefa upp reiknisnúmer sem hægt er að leggja inn á.

Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, DNA-sýni og spattmyndir á heimasíðunni www.bssl.is. Á sömu heimasíðu verður röðun hrossa birt á laugardagsmorgun 11. ágúst.

Búnaðarsamband Suðurlands


Síðsumarsýning kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum

Síðsumarsýning kynbótahrossa á Gaddastaðaflötum verður dagana 17. til 26. ágúst. Ef þátttaka verður meiri en búist er við verður bætt við dögum. Tekið verður við skráningum dagana 6. til 10. ágúst á skrifstofu Búnaðarsambandsins í síma 480-1800. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambandsins, www.bssl.is. Mikilvægt að skráð sé tímalega þar sem skammur tími er frá síðasta skráningardegi til fyrsta sýningadags.
(meira…)


back to top