Sauðfjárræktarfundur í Þingborg

Haustfundur sauðfjárræktarinnar föstudaginn 21. nóvember kl. 20.00 í Þingborg.

Fanney Ólöf Lárusdóttir fer yfir hauststörfin. Sveinn Sigurmundsson fjallar um starfsemi Sauðfjársæðingastöðvar Suðurlands og hrútakostinn. Páll Stefánsson dýralæknir fjallar um fanghlutfall, frjósemi og lungnasjúkdóma í sauðfé.  Endað verður á verðlaunaveitingum hrúta eftir kaffihlé. Verðlaun fyrir lambhrúta eru gefin af Fóðurblöndunni og Blup-verðlaun eru gefin af Jötunn vélum ehf.

Kaffiveitingar í boði Sláturfélags Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands

Nýútgefinni HRÚTASKRÁ verður dreift á fundunum

Sauðfjárræktarfólk hvatt til að mæta.


back to top