Samstarfssamningur undirritaður á Stóra-Ármóti í dag

Í tilefni alþjóðlega beinverndardagsins munu fulltrúar frá Beinvernd og Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins undirrita nýjan samstarfssamning til tveggja ára við hátíðlega athöfn á tilraunastöðinni að Stóra Ármóti í Flóahreppi kl. 15:00 í dag, miðvikudaginn 16. október. Þess má geta að fyrsti samstarfssamningur sem gerður var á milli þessar aðila var undirritaður þann 20. október 1999.
Íslenskir kúabændur hafa einnig ákveðið að gefa Beinvernd nýjan færanlegan beinþéttnimæli (ómtæki) að gjöf sem áætlað er að nýta í samstarfi við heilsugæsluna í landinu. Þessi gjöf mun efla til muna forvarnarstarf gegn beinþynningu á landsvísu því mikilvægt er að greina sjúkdóminn í tíma. Helstu forvarnir gegn beinþynningu sem tengist lífsháttum eru kalk, D-vítamín og hreyfing.
Nánar um beinþynningu og Beinvernd:
Þann 20. október ár hvert halda beinverndarfélög innan alþjóða beinverndarsamtakanna International Osteoporosis Foundation IOF upp á alþjóðlegan beinverndardag til að vekja fólk til vitundar um að beinþynning er heilsufarsvandamál sem ber að taka alvarlega. Beinvernd er eitt af þessum beinverndarfélögum.
Beinþynning er sjúkdómur í beinum sem veldur því að beinmassin minnkar og misröðun verður í innri byggingu beinsins sem leiðir til aukinnar hættu á beinbrotum. Beinþynning verður þegar beinmagnið minnkar hraðar en líkaminn endurnýjar það. Flest brot af völdum beinþynningar verða á framhandlegg, upphandlegg mjöðm og hryggjarliðum og getur valdið miklum verkjum, verulegri hömlun og jafnvel dauða.
Á heimsvísu er talið að beinbrot af völdum beinþynningar verði á þriggja sekúndna fresti. Hér á landi verða á milli 1400 og 1500 beinbrot vegna beinþynningar á ári eða um þrjú til fjögur beinbrot á dag. Við miðjan aldur mun ein af hverjum þremur konum og einn af hverjum fimm körlum brotna af völdum beinþynningar síðar á ævinni en áhættan eykst með auknum aldri.
Beinvernd mun á beinverndardaginn þann 20. október opna nýuppfærðan vef sinn www.beinvernd.is en þar er finna mikinn fróðleik um beinþynningu, forvarnir og meðferð.


back to top