Sala á kjöti og mjólk minnkar

Samdráttur hefur orðið í sölu á bæði kjöti og mjólk í vetur miðað við fyrravetur. Sala á kjöti hefur dregist saman um 3% á síðustu 12 mánuðum og á mjólk um 2,7%. Í mars dróst sala á kjöti saman um 14%, mest á lambakjöti og kjúklingum. Ef miðað er við sölu síðustu 12 mánuðina varð sölusamdráttur á öllum kjöttegundum nema nautakjöti þar sem varð örlítil aukning.
Samkvæmt yfirliti frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á mjólkurvörum í mars var heldur minni í ár en á sama tíma í fyrra.
Sölusamdráttur á próteingrunni var 9,11% en 7,69% á fitugrunni. Enginn vöruflokkur sýndi aukningu í mánuðinum. Þegar litið er til síðustu 12 mánaða er samdráttur í sölu á próteingrunni 2,70% og heildarsalan einungis 113,7 milljónir lítra, eða 2.300 þús. lítrum undir greiðslumarki yfirstandandi árs. Á fitugrunni er samdráttur í 12 mánaða sölu 2,23%, heildarsalan einungis 109,7 milljónir lítra.


back to top