Réttir á Suðurlandi haustið 2018

Fyrstu réttir haustsins á Suðurlandi, verða föstudaginn 7. september, en þá verður réttað í Fossrétt á Síðu, í Vestur-Skaftafellssýslu.  Á vef Bændsblaðsins er listi yfir allar fjár- og stóðréttir haustsins, sjá bbl.is. Rétt er að minna á að villur geta slæðst inn í listann og því alltaf best að hafa samband við heimamenn á hverjum stað til að fá staðfestingu á réttri dag- og tímasetningu.  Hér fyrir neðan má sjá listann yfir Suðurland.Réttir á Suðurlandi haustið 2018
Austur-Landeyjaréttir hjá Grenstanga, Rang. sunnudaginn 16. sept. kl. 14.00
Brúsastaðarétt í Þingvallasveit, Árn. sunnudaginn 16. sept. kl. 17.00
Fjallrétt við Þórólfsfell, Rang. mánudaginn 10. sept.
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. sunnudaginn 16. sept.
Fossvallarétt við Lækjarbotna sunnudaginn 16. sept. kl. 11.00
Haldréttir í Holtamannaafrétti, Rang. sunnudaginn 9. sept. kl. 9.00
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. laugardaginn 15. sept. kl. 15.00
Hraðastaðarétt í Mosfellsdal sunnudaginn 16. sept. kl. 13.00, seinni réttir sun. 30. sept.
Hrunaréttir í Hrunamannahreppi, Árn. föstudaginn 14. sept. kl. 10.00
Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn. laugardaginn 15. sept. kl. 14.00, seinni réttir lau. 29. sept. kl. 14.00
Kjósarrétt í Kjós sunnudaginn 16. sept. kl. 15.00, seinni réttir sun. 7. okt. kl. 15.00
Krýsuvíkurrétt v. Suðurstrandarveg, Gullbr. laugardaginn 22. sept. kl. 13.00
Landréttir við Áfangagil, Rang. fimmtudaginn 20. sept.
Laugarvatnsrétt, Árn. sunnudaginn 9. sept. kl. 17.00
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum laugardaginn 15. sept.
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. laugardaginn 15. sept. kl. 9.00
Selflatarétt í Grafningi mánudaginn 17. sept. kl. 10.00
Seljalandsréttir undir Eyjafjöllum, Rang. laugardaginn 15. sept., seinni smölun lau. 6. okt.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn. sunnudaginn 16. sept. kl. 9.00
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. föstudaginn 14. sept. kl. 11.00
Tungnaréttir í Biskupstungum laugardaginn 8. sept. kl. 9.00
Vestur-Landeyjaréttir við Forsæti, Rang. sunnudaginn 16. sept. kl. 14.00
Þóristunguréttir, Holtamannaafr., Rang sunnudaginn 9. sept. kl. 9.00
Þórkötlustaðarétt í Grindavík laugardaginn 15. sept. kl. 14.00
Ölfusrétt í Reykjadal, Ölfusi sunnudaginn 16. sept. kl. 16.00

Réttir á Suðausturlandi 2018 
Borgarhafnarrétt, Suðursveit, A.-Skaft. laugardaginn 8. sept. kl. 15.30
Fossrétt á Síðu, V.-Skaft. föstudaginn 7. sept.
Grafarrétt í Skaftártungu, V.-Skaft. laugardaginn 15. sept.
Lögrétt Álftveringa í landi Holts og Herjólfsstaða Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Skaftárrétt, V.-Skaft. laugardaginn 8. sept.


back to top