Réttir á Suðurlandi 2014

Í nýjasta Bændablaðinu er ítarlegt yfirlit yfir fjárréttir á landinu. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir réttir á Suðurlandi í stafrófsröð.  Fyrstu réttir haustsins verða í Skaftárrétt í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu þann 6. september og síðasti réttardagurinn er 25. september þegar réttað verður í Landrétt við Áfangagil í Rangárvallasýslu.  Þessir réttardagar eru birtir með fyrirvara um breytingar og alltaf er best að fá staðfestingu hjá heimamönnum um réttar dag- og tímasetningar, einnig getur verið að einhverjar réttir vanti á þennan lista.

Réttir á Suðurlandi 2014
Austur-Landeyjaréttir við Miðey Rangárvallasýslu Sunnudaginn 21. september
Brúsastaðarétt í Þingvallasveit Árnessýslu Sunnudaginn 21. september      um kl. 17.00
Fjallrétt við Þórólfsfell  Rangárvallasýslu Mánudaginn 15. september
Fjótshlíðarrétt í Fljótshlíð Rangárvallasýslu Sunnudaginn 21. september  
Fossrétt á Síðu Vestur-Skaftafellssýslu       Laugardaginn 13. september um kl. 9.00
Grafarrétt í Skaftártungu Vestur-Skaftafellssýslu Laugardaginn 13. september
Grafningsrétt í Grafningi Árnessýslu Mánudaginn 22. september um kl. 10.00
Haldréttir í Holtamannaafrétti Rangárvallasýslu Sunnudaginn 14. september um kl. 10.00
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit Árnessýslu Laugardaginn 20. september um kl. 15.00
Hrunaréttir í Hrunamannahreppi Árnessýslu Föstudaginn 12. september kl. 10.00
Húsmúlarétt við Kolviðarhól Árnessýslu Laugardaginn 20. september um kl. 14.00
Landréttir við Áfangagil  Rangárvallasýslu Fimmtudaginn 25. september um kl. 12.00
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum      Rangárvallasýslu Laugardaginn 20. september um kl. 11.00
Reykjaréttir á Skeiðum  Árnessýslu Laugardaginn 13. september um kl. 09.00
Seljalandsréttir undir Eyjafjöllum  Rangárvallasýslu Sunnudaginn 21. september
Selvogsrétt í Selvogi  Árnessýslu sunnudaginn 21. september um kl. 09.00
Skaftárrétt í Skaftártungu Vestur-Skaftafellssýslu Laugardaginn 6. september um kl. 09.00
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi  Árnessýslu Föstudaginn 12. september kl. 11.00
Tungnaréttir í Biskupstungum  Árnessýslu Laugardaginn 13. september um kl. 09.00
Vestur-Landeyjaréttir við Forsæti Rangárvallasýslu Sunnudaginn 21. september
Þóristunguréttir Holtamannaafrétti Rangárvallasýslu Sunnudaginn 14. september um kl. 10.00
Ölfusréttir í Ölfusi Árnessýslu Mánudaginn 22. september um kl. 14. 00
       

 Réttardagana má svo sjá á viðburðardagatalinu hér á síðunni, ekki birtast nema 5 viðburðir svo það þarf að ýta á „sjá alla“ til að allir réttardagarnir sjáist.

 

 


back to top