Ráðstefna um tjón af völdum álfta og gæsa í ræktunarlandi

Ráðstefna um tjón af völdum álfta og gæsa í ræktunarlandi bænda verður haldin föstudaginn 10. apríl 2015 í Gunnarsholti í húsnæði Landsgræðslu ríkisins. Ráðstefnan er haldin á vegum Umhverfisstofnunar og Bændasamtaka Íslands og verða mörg áhugaverð erindi flutt, eins og sjá má í meðfygljandi dagskrá.  Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um þessi mál, ráðstefnan er öllum opin.  

Dagskrá:

11:00 Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, býður gesti velkomna.

11:05 – 11:35 Framkvæmd og niðurstöður tilkynninga bænda á tjóni af völdum álfta og gæsa. Steinar Rafn Beck Baldursson, sérfræðingur hjá Umverfisstofnun, og Jón Baldur Lorange hjá Bændasamtökum Íslands.

11:35 – 11:50 Erindi frá bónda sem hefur orðið fyrir tjóni af völdum álfta og gæsa í ræktunarlandi sínu. (Sveinn S. er að leita eftir staðfestingu frá flutningsmanni)

11:50 – 12:10 Uppskerutap bænda vegna ágangs gæsa í ræktarlönd. Niðurstöður tilraunar. Kristín Hermannsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Suð-Austurlands.

12:10 – 13:00 Hádegishlé. Súpa og brauð.

13:00 – 13:40 Styrkir til bænda vegna tjóns af völdum gæsa í Noregi. Dr. Einar Eyþórsson, sérfræðingur hjá Norsk institutt for kulturminneforskning (NIKU)

13:40 – 14:00 Ágangur álfta og gæsa í kornakra á Suðurlandi í ljósi könnunar 2014 og dreifingar fuglanna að hausti. Kristinn Haukur Skarphéðinsson, sviðstjóri dýrafræði hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.

14:00 – 14:15 Afstaða bænda til málsins. Bændasamtök Íslands (verið að finna flutningsmann).

14:15 – 15:00 Pallborðsumræður.

15:00 Ráðstefnuslit og kaffi.
Ráðstefnustjóri: Jón Geir Pétursson, skrifstofustjóri á skrifstofu landgæða í umhverfisráðuneytinu.

 


back to top