Öskufall í Skaftártungu

Í nótt hefur verið mikið öskufall í Skaftártungu ásamt því að það hefur rignt á svæðinu. Haft er eftir Gísla Halldóri Magnússyni, bónda í Ytri-Ásum að það sé erfitt að átta sig á umfanginu því þegar aska og vatnið blandast saman sé þetta ein klessa. Sauðburður er langt kominn í Ytri Ásum hefur hefur Gísli Halldór verið með féð í gerðum heima við fjárhús. „Ærnar nýbornar og lömbin hafa verið úti í nótt og eru öskugrá á litinn. Ef ekki rætist úr svo hægt verði að koma fé á beit þá stefnir í talsverð vandræði hér,“ segir Gísli sem hefur þurft að spúla ösku af vélum og tækjum í nótt. Bílar og vinnuvélar séu huldar ösku og húsþök eru svört.

Veðurstofan spáir áframhaldandi öskufalli austur og suðaustur af eldstöðinni í dag og sunnan hennar á morgun. Jarðvísindastofnun Háskólans segir að áfram megi búast áfram við sveiflum í gosvirkninni með tilheyrandi gjóskufalli og ekkert bendi til þess að gosinu sé að ljúka.


back to top