Öskufall í Landeyjum

„Gosmökkurinn er yfir okkur í augnablikinu og hér rignir ösku,“ segir Guðlaug Björk Guðlaugsdóttir bóndi á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum í viðtali við mbl.is. Öskufall úr Eyjafjallajökli sem snemma í morgun féll yfir Fljótshlíð, Hvolsvöll og útsveitir í Rangárþingi fer nú yfir efstu bæi í Austur-Landeyjum.
„Við bregðumst við þessum aðstæðum eins og kostur er. Núna er ég á leið út í haga til að koma kvígum sem þar eru í hey og rennandi vatn,“ segir Guðlaug sem býr á Voðmúlastöðum ástamt Hlyni Thódórssyni, eiginmanni sínum.

Hún segir að fjarri fari að þau séu svartsýn, þrátt fyrir að eldgosið hafi sannarlega bakað þeim erfiðleika eins og öðrum bændum á áhrifasvæði þess. Hamförunum megi þó að ósekju fara að linna.

Veðurstofan spáir öskufalli vestur af Eyjafjallajökli, allt að Faxaflóa, í dag. Á morgun, laugardag, og á sunnudaginn eru horfur á öskufalli suðvestur og suður af eldstöðinni og á mánudaginn er útlit fyrir að aska falli norðaustur af eldstöðinni. Á þriðjudag lýtur út fyrir að aska berist til norðvesturs og norður af eldstöðinni.


back to top