Ný nautsmæðraskrá

Nú er komin ný og uppfærð nautsmæðraskrá á vefinn hjá okkur. Ræktunarhópur fagráðs í nautgriparækt ákvað á fundi sínum í maí s.l. að herða nokkuð þær kröfur sem gerðar eru til nautsmæðra og því eru að þessu sinni færri kýr en áður í skránni. Nú telur skráin 264 kýr en að auki er að finna lista yfir efnilegar ungar kýr og kvígur í skránni.

Að venju er mælst til þess að þær kýr sem í skránni er að finna verði sæddar með nautsfeðrum og að tilkynnt verði um ef þær eignast nautkálf með það í huga að hann verði tekinn á stöð. Hið sama gildir um þær efnilegu ungu kýr og kvígur sem eru í skránni.

Þær lágmarkskröfur sem nú eru gerðar til nautsmæðra eru eftirfarandi:
















































Kynbótamat Útlitsdómur
Mjólkurmagn 110 Júgur og lögun 8
Próteinmagn 110 Júgurfesta og skipting 8
Prótein% 95 Spenalengd og staðsetning 8
Eigin afurðir 100 Gerð og lögun spena 8
Afurðamat 112 Mjaltir 17
Júgur 95 Skap 4
Spenar 95
Mjaltir 95


Nautsmæðraskrána má skoða með því að smella hér.


back to top