Norðlenska greiðir uppbót á allt kjötinnlegg síðasta haust

Norðlenska hefur ákveðið að fylgja fordæmi annara sláturleyfishafa og greiða 9 kr/kg uppbót á haustslátrun dilka 2010. Hins vegar gengur Norðlenska enn lengra en aðrir að því leytinu til að félagið hefur ákveðið að greiða einnig kr/kg uppbót á innlegg svínakjöts, nautakjöts og nautgripakjöts fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2010. Greitt verður inn á bankareikninga bænda 15. apríl næstkomandi.

Að sögn Sigmundar Ófeigssonar framkvæmdastjóra Norðlenska er þessi ákvörðun tekin vegna batnandi afkoma vegna útflutnings dilkakjöts. „Við viljum einnig sýna viljann í verki og styðja aðrar búgreinar með álagsgreiðslu – teljum það sanngirnissjónarmið,“ segir Sigmundur.
Þessi uppbót nemur um 135 kr á 15 kg dilk og 2.250 kr fyrir 250 kg nautgrip svo dæmi séu tekin.



 


back to top