Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. nóvember 2014 skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 140 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.  Alls bárust Matvælastofnun 6 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. Þar af var fjöldi gildra tilboða um sölu fjögur, Fjöldi gildra tilboða um kaup voru tvö. Greiðslumark sem boðið var fram var 189.917 lítrar. Greiðslumark sem óskað var eftir var 112.404 lítrar.  Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða er því 48.654 lítrar. Kauphlutfall viðskipta er 43.28 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2014. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 140 kr/l.

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 140,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. september 2014 sýnir eftirfarandi:
• að framboð er nú 80,5 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
• að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 674,5 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
• að verð á greiðslumarki nú er 40 krónum lægra en það var á markaði þann 1. september 2014
Nánar á  Upplýsingasíða Matvælastofnunar um greiðslumark mjólkur

Frétt frá Matvælastofnun 3.11.2014

back to top