Niðurstöður afkvæmarannsókna hrúta á einstökum bæjum

Nú er búið að safna saman niðurstöðum úr öllum afkvæmarannsóknum á hrútum sem unnar voru á vegum búnaðarsambandanna haustið 2010. Umfang rannsóknanna var meira en nokkru sinni en þær voru unnar á nær 300 búum og yfir 2.500 afkvæmahópar fengu sínar niðurstöður. Í yfirlitinu sem birt er þá eru allar tölulegar upplýsingar fyrir alla afkvæmahópanna. Einnig er stutt umfjöllun um toppgripina í hverri rannsókn.Niðurstöðurnar er að finna á vef Bændasamtakanna sem og hliðstæðar niðurstöður fyrir fyrri ár eða nær áratug aftur í tímann. Þarna má því skoða ræktunarsögu á mörgum af öflugustu fjárbúum landsins síðasta áratuginn.

Niðurstöður afkvæmarannsókna í sauðfjárrækt


back to top