Áhugavert

Nánari upplýsingar um ungnaut í dreifingu er að finna á www.nautaskra.net

Tenglar

Nautgriparækt > Kynbótastöð Suðurlands > Ungnaut í dreifingu >

Ungnaut í dreifingu

Sæðisáfylling 2. febrúar 2010. Til dreifingar komu Sigurfari 08041 frá Hjarðarfelli á Snæfellsnesi undan Náttfara 00035 og Tvennu 205 Fróðadóttur 96028, Bambi 08049 frá Dæli í Fnjóskadal undan Laska 00010 og Stáss 319 Kaðalsdóttur 94017, Stapi 08054 frá Syðri-Knarrartungu á Snæfellsnesi undan Spotta 01028 og Slóð 362 Stígsdóttur 97010 og Pollur 08054 frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum undan Spotta 01028 og 393 Stígsdóttur 97010.

Sæðisáfylling 19. janúar 2010. Til dreifingar komu Klettur 08030  frá Grjótá í Fljótshlíð undan Laska 00010 og Viðju 135 Fróðadóttur 96028 og Snúður 08048  frá Núpstúni í Hrunamannahreppi undan Snotra 01027 og Brá 159 Punktsdóttur 94032.

Sæðisáfylling 14. desember 2009. Til dreifingar kom Blómi 08017 frá Heggsstöðum í Borgarbyggð undan Náttfara og Sól 082 Kaðalsdóttur 94017.

Sæðisáfylling 24. nóvember 2009.  Til dreifingar kom Flekkur 08029 frá Sauðhúsvelli undir Eyjafjöllum undan Náttfara 00035 og Flekku 190 Kaðalsdóttur 94017.

Sæðisáfylling 3. nóvember 2009.
Til dreifingar komu Skúmur 08011 frá Ingjaldsstöðum í Þingeyjarsveit undan Náttfara 00035 og Bliku 137 Hersisdóttur 97033 og Þáttur 08021 frá Berjanesi í V-Landeyjum undan Laska 00010 og Snúru 254 Roðadóttur 96978 Holtasonar 88017.

Sæðisáfylling 18.ágúst 2009. Til dreifingar komu Laufás 08003  frá Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði undan Laska 00010 og Ölmu 238 Aðalsdóttur 02039 og Drengur 08004  frá Vatnsenda í Eyjafirði undan Laska 00010 og Dömu 272 Kaðalsdóttur 94017.

Sæðisáfylling 4. ágúst 2009. Til dreifingar komu Sámur 08009  frá Vestri-Sámsstöðum í Fljótshlíð undan Náttfara 00035 og Skeifu 165 Almarsdóttur 90019 og Höldur 08010  frá Stóru-Mástungur í Skeiða- og Gnúpverjahr. undan Gosa 00032 og Snýkju 308 Soldánsdóttur 95010.

Sæðisáfylling 7. júlí 2009. Til dreifingar kom Blámi 07058  frá Bláfeldi í Staðarsveit undan Laska 00010 og Doppu 122 Punktsdóttur 94032.

Sæðisáfylling 9.júní 2009. Til dreifingar komu Blængur 07042   frá Berghyl í Hrunamannahreppi og Toppur 07046   frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi. Blængur er undan Glanna 98026 og Búbjörg 366 Punktsdóttur 94032. Toppur er undan Hersi 97033 og Toppu 276 Punktsdóttur 94032.
Þá eru Hóll 07037, Húfur 07049 og Keipur 07054 áfram í dreifingu.

Sæðisáfylling 12.maí 2009. Til dreifingar kom Stakkur 07059   frá Stakkhamri á Snæfellsnesi. Stakkur er undan Umba 98036 og Glóð 185 Hófsdóttur 96027.

Sæðisáfylling 28.apríl 2009.   Til dreifingar komu ungnautin Humall 07050 , Keipur 07054  og Húfur 07049 . Humall er frá Reykjahlíð á Skeiðum, sonur Glanna 98026 og Rispu 533 Stígsdóttur 97010. Keipur er frá Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum og er undan Þolli 99008 og 679 Kaðalsdóttur 94017. Húfur er frá Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum, undan Laska 00010 og Húfu 350 Trefilsdóttur 96006.

Sæðisáfylling 14. apríl 2009.   Til dreifingar kom ungnautið Húni 07041   frá Syðra-Hóli í Skagabyggð. Hann er rauðskjöldóttur, sonur Laska 00010 og Aldísar 176 Soldánsdóttur 95010.

Sæðisáfylling 31. mars 2009 . Til dreifingar kom ungnautið Lukki 07048 frá Svertingsstöðum Eyjafirði. Hann er kolhuppóttur að lit, sonur Umba 98036 og Lukku sem er ein margra farsælla Kaðalsdætra. Þá er Hóll 07037  frá Helluvaði, rauður að lit undan Umba 98036 og Þúfu 543 sem er dóttir Stígs 97010 og fékk m.a. 88 stig fyrir byggingu áfram til dreifingar.

Prenta þessa síðu