Tenglar

Til þess að skoða pdf-skjöl þarftu Adobe Reader. Þú getur sótt Adobe Reader hér.

Sækja Adobe Reader

Nautgriparækt > Kynbótastöð Suðurlands >

Kynbótastöð Suðurlands

  
Þorleifskot


 Röðull S 226


Árangur kúasæðinga á Suðurlandi
Kynbótastöð Suðurlands hóf starfsemi sína 1. janúar 1958. Keypt voru reynd og góð naut víða um héraðið og sætt með fersku sæði. Þátttaka meðal bænda varð strax mjög góð og fljótlega voru flestir bændur að Jökulsá á Sólheimasandi orðnir félagsmenn. Síðast komu bændur austan sands eða árið 1970. Farið var að djúpfrysta nautasæði 1972 en árið 1978 var sæðistöku hætt en gengið til samstarfs við Nautastöð Bændasamtaka Íslands sem þá var á Hvanneyri. Vorið 2009 flutti Nautastöð BÍ starfsemi sína í nýja nautastöð að Hesti og þar fer öll sæðistaka og dreifing nautasæðis á landinu fram.

Þátttaka í sæðingum er mjög góð og yfir 95% sunnlenskra kúa er sæddar. Árið 2007 voru 9.871  kýr sæddar fyrstu sæðingu á Suðurlandi. Fangprósenta árið 2007 (mæld sem kýr sem ekki koma til endursæðinga 60 dögum eftir fyrstu sæðingu) var 69,1%. Við Kynbótastöð Suðurlands starfa 5 fastráðnir frjótæknar sem allir hafa fengið þjálfun í fangskoðunum og auk þess sinnir héraðsdýralæknirinn á Klaustri sæðingum fyrir austan sand að Álftaveri undanskildu.
Auk þessa býður Kynbótastöðin upp á klaufskurð og hefur til þess sérhannaðan klaufskurðarbás og þjálfaða menn.

Sæðingagjöld eru kr. 1.000 á kú. Ekki er innheimt fyrir sæðingar á kvígum. Jafnframt fær Kynbótastöðin framlög af kynbóta- og þróunarfé samnings um starfsskilyrði í mjólkurframleiðslu. Fyrir holdasæðingar er innheimt kr. 600 aukalega á sæðingu með Angus og Limousine-sæði en kr. 1.000 aukalega á sæðingu með Galloway-sæði.



Starfsmenn Kynbótastöðvar Suðurlands

Sveinn Sigurmundsson , framkvæmdastjóri
Sími 480 1800 · Netfang: sveinn@bssl.is

Klaufskurður:
Sigmar Aðalsteinsson og Þorsteinn Logi Einarsson - pantanir í síma 480 1800.

Frjótæknar:
Bragi Ágústsson

Pantanasími 482 2056 - GSM 894 7145
Starfssvæði: Flói, Ölfus og Grímsnes (nema Hagi).

Þráinn Jónsson
Pantanasími 486 8981 - GSM 894 7147
Starfssvæði: Biskupstungur, Laugardalur, Hagi í Grímsnesi og Hrunamannahreppur.

Bjarni Einarsson
Pantanasími 486 5563 - GSM 863 7144
Starfssvæði: Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur og Holt.

Hermann Árnason
Pantanasími 487 8611 - 894 7148
Starfssvæði: Milli Markarfljóts og Ytri Rangár (nema Hólmabæir og austurhl. A-Landeyja), Djúpárhreppur og Landsveit.

Smári Tómasson
Pantanasími 487 1410 - 894 7149
Starfssvæði: Milli Skálmar og Markarfljóts, Hólmabæir og austurhl. A-Landeyja.

Gunnar Þorkelsson
Pantanasími 487 4719
Starfssvæði: Fyrir austan Skálm.

Lesið er af símsvörum kl. 9.00. Þá eiga allar pantanir dagsins að vera komnar. Hægt er að hringja hvenær sem er sólarhringsins og leggja inn pantanir.

Ekki er ætlast til þess að sæðingar séu pantaðar í GSM símanúmer frjótækna.

Þegar pantað er þarf að koma fram hvar á að sæða og gott getur verið að vita:
1. hve margar kýr á að sæða
2. hvenær sá á þeim
3. hvort gangmál séu samstillt
4. hvaða naut á að nota

Mikilvægt er að tala skýrt og greinilega og forðast að nota farsíma við léleg skilyrði.

Prenta þessa síðu