Námskeið um kynbótamat íslenskra hrossa

Endurmenntun LbhÍ í samstarfi við Hrossaræktarsamtök Suðurlands bjóða upp á námskeið um kynbótamat íslenskra hrossa. Námskeiðið er ætlað áhugafólki um ræktun íslenska hestsins.
Á námskeiðinu verður farið yfir kynbótamatið, uppbyggingu þess og útfærslu. Enn fremur verður farið í þróun kynbótamatsins, samþættingu þess við keppniseiginleika og mikilvægi þess að taka tillit til forvals í gögnum. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á helstu atriðum kynbótamatsins og hvernig ræktendur geti nýtt sé það í ræktunarstarfinu.

Kennari: Elsa Albertsdóttir , doktórsnemi við LbhÍ

Staður og stund: Mið. 19. jan. Kl. 19:45-22:00 í félagsheimili Sleipnis, Suðurtröð á Selfossi.

Verð: 3000 kr 

Skráningar hjá Endurmenntun LbhÍ:  Um tölvupóstinn endurmenntun@lbhi.is   (nafn, kennitala, heimili og sími) eða í síma 433 5000.
Þátttökugjald greiðist fyrirfram á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590, kvittun send á endurmenntun@lbhi.is 


back to top