Námskeið fyrir sauðfjárbændur „haustið“

Námskeið fyrir sauðfjárbændur haldið á Stóra-Ármóti.

Fyrirhugað er að bjóða upp á námskeið fyrir sauðfjárbændur sem hefur yfirskriftina “Haustið” og fjallar um líflambaval og kynbætur. Farið verður í lambadóma, meðferð lamba að hausti og fleira. Námskeiðið byggir annarsvegar á fyrirlestrum og hinsvegar á verklegum æfingum þar sem farið verður í fjárhús og lömb þukluð og skoðuð.

Þetta námskeið verður í boði á Stóra-Ármóti, Árnessýslu þann 8. september. Námskeiðin standa frá kl. 10:00 til 16:00. Kennarar verða Eyþór Einarsson, Árni Bragason, Fanney Ólöf Lárusdóttir. Skráning í síma 516-5000 eða á netfangið ee@rml.is. Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 29. ágúst. Námskeiðsgjald er 18.000 kr. á hvern þátttakanda.

Námskeiðið er líka haldið í Suður-Þingeyjarsýslu 2. september og þar eru sömu kennarar nema María Svanþrúður kemur inn í stað Fanneyjar.

 


back to top