Mókolla 230 setur nýtt Íslandsmet í æviafurðum

Mókolla 230 á Kirkjulæk í Fljótshlíð hefur nú slegið Íslandsmet Hrafnhettu 153 í Hólmum í A-Landeyjum. Mókolla sem enn er að hafði nú í lok nóvember mjólkað samtals 111.354 kg mjólkur eða 151 kg meira en Hrafnhetta gerði á sínum tíma.
Mókolla 230 hefur verið ákaflega farsæl kýr, hún er fædd 7. apríl 1996, dóttir Snarfara 93018, og er því á sínum 17. vetri. Langlífið og afurðirnar á Mókolla því kannski ekki langt að sækja því amma hennar, Snegla 231 í Hjálmholti, móðir Snarfara, varð 17 vetra og mjólkaði samtals 100.736 kg á sinni ævi.

Mókolla bar 1. kálfi 24. október 1998 og síðast bar hún 8. febrúar 2012. Mókolla hefur nú mjólkað í 14,1 ár að meðaltali 7.896 kg á ári með 4,67% fitu og 3,63% próteini.
Ef heildarafurðir Mókollu eru reiknaðar til verðs á því verði sem fæst fyrir mjólkina í dag hefur hún skilað 9.881.033 kr. eða 700.782 kr. á ári að jafnaði.

Afurðir hennar hafa verið sem hér segir:


1998: 1.324 
1999: 4.747 
2000: 7.576 
2001: 86.56 
2002: 8.759 
2003: 8.138 
2004: 7.967 
2005: 9.220 
2006: 8.162 
2007: 6.525
2008: 10.398
2009: 8.084
2010: 7.735
2011: 5.680
2012: 8.374


Við óskum ábúendum á Kirkjulæk til hamingju með árangur Mókollu sem er á margan hátt einstæður.


back to top