Metþátttaka í sauðfjársæðingum haustið 2016

Alls voru sæddar 15570 ær með fersku sæði frá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands haustið 2016 og er mesta notkun frá upphafi. Veður og færð var okkur hagstætt en þó brugðust flugsamgöngur tvívegis. Nýting á útsendu sæði var tæp 68% sem er aðeins meira en í fyrra en þó varla viðunandi. Mikil aukning í sæðingum var hjá Skagfirðingum, Húnvetningum og Rangæingum. Áberandi var hvað margir fjárbændur sæddu yfir 100 ær en á Suðurlandi voru þeir 18 og að auki 6 bændur með milli 90 og 100 ær sæddar.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróunina frá 2000 í töflu:

Sæddar ær frá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands 2016 með fersku sæði


back to top