Merkingar alls fóðurs skulu vera á íslensku

Vakin er athygli á tveimur nýlegum reglugerðum um merkingu fóðurs sem sett er á markað á Íslandi. Annars vegar er reglugerð nr. 744/2011 sem innleiðir reglugerð ESB nr. 767/2009 um notkun og markaðssetningu fóðurs. Hins vegar reglugerð nr. 1038/2010 um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs. Sérstaklega er vakin athygli á að skv. nýjum reglum skulu merkingar alls fóðurs vera á íslensku og hafi fóðrið verið framleitt úr erfðabreyttum hráefnum (sojamjöli, sojabaunum, maís, repju eða öðrum erfðabreyttum hráefnu) skal það koma skýrt fram á merkingu fóðursins.
Þessar reglur eiga við allt fóður hvort sem það er ætlað dýrum sem alin eru til matvælaframleiðslu eða gæludýrum.

Sjá nánar:
Leiðbeiningar – Lögboðnar merkingar fóðurs 


Leiðbeiningar – Lögboðin merking gæludýrafóðurs 


Lög og reglur um fóður


back to top