Kynbótasýning á Gaddstaðaflötum við Hellu

Kynbótasýning fer fram á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 3. til 14. júní. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunnihttp://www.worldfengur.com/ þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins http://www.rml.is/.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er nk. föstudag 24. maí. 
Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.
Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni http://www.rml.is/ þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Stóðhestar fimm vetra og eldri þurfa að hafa fyrirliggjandi í WorldFeng blóðsýni og röntgenmynd af hæklum, ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. 
 
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

 


back to top