Kúabændur uggandi um efndir mjólkursamnings

Á vef Landssambands kúabænda er greint frá því að eftir lauslega skoðun virðist sem fjárlagafrumvarp næsta árs geri ráð fyrir að allar greiðslur til kúabænda sem mjólkursamningurinn mælir fyrir um, verði mánuð hvern árið 2009 sama eða mjög svipuð upphæð eins og greitt var fyrir í desember 2008, óháð verðbólgu á árinu 2009.
Ástæða uggs Landssambands kúabænda er eftirfarandi fréttatilkynning sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér í dag:

„Gert er ráð fyrir að gjöld og samningar sem taka breytingum á milli ára samkvæmt verðlagi hækki í samræmi við þær áætlanir sem settar voru fram í fjárlagafrumvarpinu í byrjun október þar sem verðhækkanir ársins 2008 voru áætlaðar 11,5% en hækkun ársins 2009 var áætluð 5,7%. Er þetta nokkuð lægra en mælingar og spár gera ráð fyrir nú“.

Gangi þetta eftir, munu verðbætur ekki verða greiddar í samræmi við ákvæði samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar, sem undirritaður var 10. maí 2004.
Stjórnvöld hafa rætt þetta mál við forsvarsmenn bænda og stjórn Landssambands kúabænda fjallaði um málið á símafundi í gær. Það er sameiginleg afstaða forsvarsmanna bænda, að standa beri við gerða samninga og umrædd áform séu algerlega á ábyrgð stjórnvalda.

Gangi þetta eftir, mun það leiða af sér umtalsvert tekjutap kúabænda, sem þó fer alveg eftir verðbólgustigi ársins 2009, sem óljóst er hvert verður. Annað atriði sem miklu skiptir er að í 22 ár hafa bændur getað treyst því að ríkið muni standa að fullu við gerða samninga. Ráðherra landbúnaðarmála sá ástæðu til að geta þess alveg sérstaklega á fyrsta haustfundi LK þann 13. október sl. að það yrði gert. Nú ríkir óvissa um hvort staðið verði við samninginn, og eru það gríðarleg vonbrigði og áfall fyrir kúabændur.
 
BHB og ÞS
 


back to top