Jarðvegssýnataka 2010

Á haustin er rétti tíminn fyrir bændur að taka jarðvegssýni úr túnum og ökrum og senda til efnagreiningar. Niðurstöður jarðvegsefnagreininga gefa góðar upplýsingar um sýrustig jarðvegs og steinefnainnihald sem eru mikilvægar forsendur fyrir áburðaráætlun komandi sumars. Hins vegar er betra að taka heysýni til að meta fosfór (P) og kalí (K) því þá sjáum við hvað plantan er að taka upp í raun. Hægt er að fá sérstakan heysýnabor hjá Búnaðarsambandi Suðurlands til þessa verks.
Búnaðarsamband Suðurlands hvetur bændur í ákveðnum búnaðarfélögum á sambandssvæðinu til að taka jarðvegssýni en að sjálfsögðu er bændum og öðrum landeigendum frjálst að taka jarðvegssýni þess utan.
Framkvæmd verður svipuð og síðustu ár. Bændur taka sýni sjálfir samkvæmt leiðbeiningum en umsjón, skiplag og ráðgjöf verður í höndum Margrétar á BSSL. Sýni verða send til efnagreiningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og kostar efnagreiningin 3.386 án vsk. á hvert sýni. Best er að taka sýnin á haustin frá september og fram að frostum. Tilgangslítið er að taka jarðvegssýni úr þeim túnum sem búfjáráburður hefur verið dreift á síðari hluta sumars eða í haust.
Jarðvegssýnaborum ásamt pokum og öðrum fylgigögnum hefur verið komið til formanna viðkomandi búnaðarfélaga og geta bændur nálgast þá þar. Bændur og aðrir landeigendur geta fengið jarðvegssýnabor og önnur fylgigögn á skrifstofu Búnaðarsambandsins á Selfossi eða haft samband við Margréti í síma 480-1809, tölvupóstur margret@bssl.is, til að fá þá senda til sín.
Bændur á eftirtöldum búnaðarfélögum eru hvattir til að taka jarðvegssýni í haust:



























Búnaðarfélag: Hafið samband við:
Álftaver Páll Eggertsson, Mýrum – 487-1351
Fljótshlíð Páll Eggertsson, Kirkjulæk – 487-8380
Skaftártunga Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, Ljótarstöðum – 487-1362
Bláskógabyggð Óttar Bragi Þráinsson, Miklaholti – 486-8690
Leiðvallahreppur Ómar Jónsson, Efri Ey 2 – 487-4735
Stokkseyrarhreppur Margrét Ingjaldsdóttir, BSSL – 480-1809
Eyrarbakkahreppur Margrét Ingjaldsdóttir, BSSL – 480-1809

Leiðbeiningar við töku jarðvegssýna


back to top