Jarðrækt > Túnkortagerð >
Túnkortagerð
Búnaðarsamband Suðurlands býður upp á gerð túnkorta fyrir bændur og aðra landeigendur. Túnkortin eru unnin á litaloftmyndir samkvæmt samningi Bændasamtaka Íslands og búnaðarsambandanna við fyrirtækið Loftmyndir ehf. Túnkortin eru unnin á stafrænan hátt sem gerir það auðvelt að halda þeim við hafi þau einu sinni verið unnin. Með þessari tækni er vinnsla myndanna orðin bæði hröð og einföld. Framsetning kortanna er einföld og skýr eins og sjá má á túnkortinu á Stóra-Ármóti hér til hliðar.
Greiða þarf Loftmyndum ehf. sérstakt leyfisgjald til að mega nota myndir fyrirtækisins í þessum tilgangi eða um 13.923 kr. án vsk. á hverja jörð sem túnkort er teiknað fyrir 1.júlí 2011-30. júní 2012. Gjaldið til Loftmynda ehf. er aðeins greitt í fyrsta sinn sem túnkort er unnið en ekki fyrir síðari breytingar. Við leigugjaldið til Loftmynda ehf. bætist tímagjald starfsmanns BSSL sem vinnur túnkortið. Útseld vinna ráðunautar er 6.000 kr/klst. án vsk. en bændur sem greiða búnaðargjald fá afslátt af tímagjaldi. Án ábyrgðar má reikna með að túnkortagerð og prentun getið tekið að jafnaði 4-10 klst.á bú ef undirliggjandi mynd er góð og heimsókn er ekki nauðsynleg til að átta sig betur á aðstæðum. Miðað við framansagt má reikna með að hefðbundið túnkort kosti á bilinu 30.000 - 55.000 krónur án vsk. á árinu 2012.
Góð túnkort eru þarfaþing við skipulagningu ræktunar og gerð markvissra áburðar- og beitaráætlana. Túnkort eru þar með grunnstoð við stýringu á stærstu kostnaðarliðum í búrekstrinum.
Ef þig vantar túnkort hafðu þá samband við einhvern af neðangreindum starfsmönnum:
Grétar Már Þorkelsson
470-8088 / 864-6487
gretar@bssl.is Halla Kjartansdóttir
480-1813 / 699-0717
hk@bssl.is Kristján Bjarndal Jónsson
480-1800 / 896-6619
kbj@bssl.is Pétur Halldórsson
487-1513 / 862-9322
petur@bssl.is