|
Áburðaráætlun Búnaðarsamband Suðurlands býður bændum og öðrum aðilum upp á áburðaráætlanagerð sem tekur mið af áburðarþörf, nýtingu búfjáráburðar og áburðarverði. Til þess að áburðaráætlun verði sem best þurfa að liggja fyrir niðurstöður úr úr heyefnagreiningum og/eða jarðvegsefnagreiningum. Betra er að nota heysýni til að meta fosfór (P) og kalí (K) því þá sjáum við hvað plantan er að taka upp í raun.
Í fullunninni áburðaráætlun kemur fram heildarmagn tilbúins áburðar, verð og svo áburðarmagn á hverja spildu fyrir sig.
Vanti þig áburðaráætlun þá hafðu samband við okkur, síminn er 480 1800.
|