Íbúafundur á Hvolsvelli í kvöld

Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu á Hvolsvelli í kvöld , fimmtudaginn 20. maí 2010 kl. 20.30. Farið verður yfir þróun eldgossins í Eyjafjallajökli, afleiðingar þess og stöðuna í dag. Þar munu eftirtaldir aðilar halda framsöguerindi og svara spurningum íbúa:
Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur
Þorsteinn Jóhannsson, svifrykssérfræðingur
Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Suðurlandi
Haraldur Briem, sóttvarnalæknir
Fundarstjóri verður Víðir Reynisson deildarstjóri almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra.
Fundurinn er öllum opinn og allir velkomnir.
Einnig verður upplýsingafundur fyrir Pólverja á sama stað kl. 17.00

Þjónustumiðstöðin að Heimalandi er opin milli kl. 11:30 og 13:30 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. 
Þjónustumiðstöðin í Vík í Mýrdal er opin daglega á milli kl. 11:30 og 13:30


back to top