Íbúafundir næstu daga

Næstu daga verða haldnir íbúafundir á Suðurlandi. Þar munu yfirvöld fara yfir stöðu mála með íbúum ásamt almannavarnanefnd í héraði, dýralækni, veðurfræðingi, jarðvísindamanni og fleiri sérfræðingum og fulltrúum stofnana.
Fundirnir eru sem hér segir:

Mánudagur 19. apríl

kl. 10.30 Gunnarshólma
kl. 14.00 Heimalandi
kl. 17.00 félagsheimilinu í Vík
kl. 20.30 Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri

Þriðjudagur 20. apríl

kl. 14.00 Laugalandi
kl. 18.00 Vestmannaeyjum

Miðvikudagur 21. apríl

kl. 17.00 Hellu
kl. 20.00 Hvolsvelli


back to top