Hvorki salmonella eða E. coli finnst í nautgripum á Íslandi

Á tímabilinu janúar 2010 til janúar 2011 tók Matvælastofnun sýni á 169 nautgripabúum í 7 umdæmum í þeim tilgangi að kanna hvort greina mætti salmonellu eða E. coli 0157:H7 í sýnunum. Sýnin voru rannsökuð af Tilraunstöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og reyndust Öll sýnin neikvæð m.t.t. salmonellu og E. coli 0157:H7. Þetta eru góðar niðurstöður og má draga þá ályktun af rannsókninni að litlar líkur séu á að E. coli O157:H7 og Salmonella berist í fólk með íslenskum nautgripaafurðum.Þó er mikilvægt að sofna ekki á verðinum og æskilegt er að fylgst sé með afurðum með reglubundnum sýnatökum segir á heimasíðu Matvælastofnunar.

Rannsókn á E. coli og salmonellu í nautgripum á Íslandi – MAST


back to top