Áhugavert

Tenglar

Hrossarækt > Hrossaræktarsamtök Sl. > Um HS >

Um HS

Árið 1996 voru Hrossaræktarsamtök Suðurlands stofnuð í núverandi mynd með sameiningu Hrossaræktarsambands Suðurlands og deild Félags hrossabænda á Suðurlandi. Hrossaræktarsamband Suðurlands var upphaflega stofnað 1949. Félagssvæðið nær frá Hvalfjarðarbotni í vestri austur um Suðurland að Lómagnúpi í austri.

Hrossaræktarsamtökin eru búgreinafélag með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja og þar með aðili að Félagi hrossabænda, Búnaðarsambandi Suðurlands og Bændasamtökum Íslands.

Tilgangur samtakanna:
Í 4. gr. laga samtakanna er tilgangur þeirra greindur og þar með hver helstu viðfangsefni þeirra eru:

 


Aðsetur:
Hrossaræktarsamtök Suðurlands hafa skrifstofuaðstöðu hjá Búnaðarsambandi Suðurlands í Búnaðarmiðstöðinni að Austurvegi 1 á Selfossi.

 

Stjórn:
Sveinn Steinarsson, Litlalandi, 801 Selfoss, formaður. Sími 483 3884, GSM 892 1661.
Ólafur Einarsson, Torfastöðum, 801 Selfoss.
María Þórarinsdóttir, Fellskoti, 801 Selfoss.
Sigríkur Jónsson, Syðri-Úlfsstöðum, 861 Hvolsvöllur.
Birgir Leó Ólafsson, Borg, 801 Selfoss.

Varamenn:
Ólafur Þórisson, Katrín Sigurðardóttir og Þórdís Erla Gunnarsdóttir.


Halla Eygló Sveinsdóttir, hrossaræktarráðunautur BSSL, er samstarfsaðili stjórnar í ýmsum málum er að samtökunum lúta. Sími 480 1800 (beinn sími 480 1806), netfang: halla@bssl.is.

Prenta þessa síðu