
| 7.2.2012 15:01 Hrossaræktarfélag Hrunamanna 100 ára Málþing, ljósmyndasýning og afmælishátíð Laugardaginn 11. febrúar 2012 verður haldið upp á afmæli HRFH með tvennum hætti, kl. 14:00 verður málþing í félagsheimilinu á Flúðum og um kvöldið verður mikil hátíð með veislumat að hætti Hótels Flúða. Einnig verður sett upp ljósmyndasýning í Félagsheimilinu.Á málþingið koma þeir Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, og Gunnar Arnarson, hrossaræktandi með meiru í Auðsholtshjáleigu. Allir sem áhuga hafa á hrossarækt eru hvattir til að koma og hlusta á fróðleg erindi. Frítt er inn á málþingið og kaffiveitingar í boði Hrossaræktarfélagsins. Afmælishátíðin hefst svo kl. 20:30 en húsið opnar kl. 20:00 með fordrykk í boði Líflands. Lesa meira... |
| 19.1.2012 09:36 Frá uppskeruhátíð hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi Laugardaginn 14.janúar s.l. var haldin sameiginleg uppskeruhátíð hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi en þar eru starfandi þrjú hrossaræktarfélög, í fyrrum Villingaholts-, Gaulverjabæjar- og Hraungerðishreppum.Anton Páll Níelsson hélt mjög fróðlegt erindi þar sem farið var vítt og breytt yfir ýmsa þætti hrossaræktar og reiðmennsku. Hvert hrossaræktarfélag veitti svo verðlaun fyrir sitt félag og að síðustu voru veitt verðlaun fyrir efstu hross í öllum félögunum. Lesa meira... |
| 13.1.2012 08:49 Fræðslukvöld. Hvað er reiðmennska? Hrossaræktarsamtök Suðurlands standa fyrir fræðslukvöldi þriðjudaginn 17. janúar kl. 20:00 í félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis, Hliðskjálf, Suðurtröð á Selfossi (hesthúsahverfinu). Að þessu sinni ætlar Benedikt Líndal tamningameistari að vera með spjallkvöld undir yfirskriftinni „Hvað er reiðmennska?“ Er hægt að flokka hana niður? Stefnum við í rétta átt? Getum við gert eitthvað öðruvísi? Er í lagi með þann útbúnað sem er notaður? Hvað með viðhorf okkar til árangurs ofl. skemmtilegt og umhugsunarvert. Lesa meira... |
| 11.1.2012 13:28 Hestadómarinn! Gæðingadómarafélag LH og Íþróttadómarafélag LH, í samstarfi við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, bjóða upp á námskeiðið Hestadómarinn. Nám þetta er fyrst og fremst hugsað fyrir starfandi íþrótta- og gæðingadómara og fólk sem hyggst gerast dómarar en getur einnig nýst víðum hópi áhugasamra hestamanna. Námskeiðið er tilvalið fyrir starfandi dómara til að dýpka þekkingu sína á hestinum og eflast í sínum störfum. Þeir sem hafa hug á að ná sér í dómararéttindi seinna meir fá þarna góðan grunn. Ræktendur fá innsýn í hvað og hvernig hestar eru metnir og einnig er gott að öðlast þekkingu á dómstörfum til að geta metið sína eigin hesta eða aðstoðað keppnisknapa. Þannig á þetta námskeið á að nýtast breytum hópi fólks. Lesa meira... |
| 20.12.2011 08:26 Landsmót 2014 verður á Gaddstaðaflötum Stjórn Landssambands hestamannafélaga hefur ákveðið að Landsmót 2014 verði á Gaddstaðaflötum við Hellu og 2016 verði það á Vindheimamelum í Skagafirði.Lesa meira... |
| 30.11.2011 08:36 Bókin Hrossaræktin 2011 til félaga í FH Allir félagsmenn í Félagi hrossabænda fá eintak af bókinni Hrossaræktin 2011 sér að kostnaðarlausu. Aðildarfélög FH hafa fengið bókina afhenta og munu sjá um dreifingu. Félagar í Hrossaræktarsamtökum Suðurlands geta fengið bókina afhenta hjá Höllu Eygló Sveinsdóttur á skrifstofu Búnaðarsambands Suðurlands, Austurvegi 1 á Selfossi. Lesa meira... |
| 19.11.2011 18:24 Auðsholtshjáleiga ræktunarbú ársins í fimmta sinn Á ráðstefnunni Hrossarækt 2011 sem fram fór á Hótel Sögu í dag hlaut Auðsholtshjáleiga í Ölfusi viðurkenningu sem hrossaræktarbú ársins. Í Auðsholtshjáleigu búa þau Kristbjörg Eyvindsdóttir og Gunnar Arnarsson ásamt börnum sínum, þeim Þórdísi Erlu og Eyvindi Hrannari. Þetta er í fimmta sinn sem búið hlýtur þessa viðurkenningu en að þessu sinni var árangurinn ekki af verri endanum. Þannig voru 20 hross frá búinu sýnd í ár með meðaladlurinn 5,35 ár, 8,01 í aðaleinkunn auk þess sem þrjár efstu heiðursverðlaunahryssur ársins koma frá búinu. Það eru þær Gígja, Trú og Vordís. Þá hampaði stóðhesturinn Gári frá Auðsholtshjáleigu Sleipnisbikarnum á landsmótinu sl. sumar, stóð þar efstur heiðursverðlaunastóðhesta. Enn fremur má telja til að Arnoddur frá Auðshltshjáleigu stóð efstur í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Austurríki. Lesa meira... |
| 27.10.2011 08:39 Umsóknir lán eða styrki úr Stofnverndarsjóði Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 470/1999 um sama efni.Verkefni sjóðsins eru: Að veita fé til þróunarverkefna í hrossarækt sem nýtast til styrktar íslenska hrossastofninum. Lesa meira... |
| 22.10.2011 09:01 Fjórtán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2011 Fagráð í hrossarækt hefur tilnefnt fjórtán bú til ræktunarverðlaunanna í ár. Búin eru eftirfarandi, í stafrófsröð:Lesa meira... |
| 19.10.2011 11:21 Guðlaugur og Mette á haustfundi HS Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður í kvöld kl. 20 í félagsheimili Sleipnis, Hliðskjálf á Selfossi (hesthúsahverfinu í Suðurtröð). Guðlaugur Antonsson fer yfir sýningarárið og Mette Mannseth fjallar um tamningar og þjálfun ungra hrossa. Stjórn HS hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Lesa meira... |