Hjalti Gestsson látinn

Hjalti Gestsson fyrrverandi ráðuanutur og framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands lést í gær á 94. aldursári. Hjalti var fæddur 10. júní 1916 að Hæli í Gnúpverjahreppi. Hjalti var mikilvirkur brautryðjandi innan íslenskrar búfjárræktar, þ.e. nautgripa- sauðfjár- og hrossaræktar.
Hjalti lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1938. Hann varð búfræðikandídat frá Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1941 og lauk þaðan framhaldsnámi tveimur árum síðar.

Hjalti vann hjá Landsøkonomisk Forsøgslaboratorium í Kaupmannahöfn á námsárum sínum þar í borg. Þá var hann ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands frá 1946 til 1986, þar af var hann einnig framkvæmdastjóri sambandsins á árunum 1959 til 1986. Hann lét af störfum sem framkvæmdastjóri Búnaðarsambandsins er hann varð sjötugur en vann eigi síður að ýmsum verkefnum á vegum þess til ársins 1996.
Hjalti sat í bændaskólanefnd í Skálholti, stóð að búnaðarkennslu í Stóru-Sandvík og var stundakennari við Bændaskólann á Hvanneyri frá stofnun framhaldsdeildarinnar árið 1949 til 1957. Þá var Hjalti Búnaðarþingsfulltrúi 1967-1983 og sýslunefndarmaður fyrir Selfosshrepp 1958-1970.


Stuttu eftir að Hjalti kom til starfa hjá Búnaðarsambandinu setti hann saman dómstiga sem notaður var við kúadóma. Dómskali þessi var notaður á öllum kúasýningum frá 1951 til 1976 og er enn undirstaðan í því dómkerfi sem notað er í dag.


Hjalti stjórnaði fjárskiptum vegna mæðiveiki í Árnessýslu, Gullbringu- og Kjósarsýslu og Reykjavík í byrjun 6. áratugarins. Þá var hann frumkvöðull að því að lambhrútasýningar yrðu teknar upp. Þangað til höfðu einungis verið sýndir fullorðnir hrútar. Lambhrútasýningarnar urðu fljótt vinsælar og stuðla að því að stytta ættliðabilið í íslenskri sauðfjárrækt.


Þá stuðlaði hann að stofnun Hrossaræktarsambands Suðurlands. Hjalti var vel ritfær og eftir hann liggur fjöldi greina og svo skrifaði hann bókina Sauðfjárræktin á Suðurlandi sem þegar er orðið merkilegt uppsláttarrit, m.a. um fjárskiptin og þróun sauðfjárræktar á landinu.


Árið 2006, þegar Hjalti varð níræður, var haldin ráðstefna honum til heiðurs þar sem fluttir voru fyrirlestrar um ýmis efni innan íslenskrar búfjárræktar.


Búnaðarsamband Suðurlands vottar ættingjum og aðstandendum Hjalta Gestssonar samúð sína vegna fráfalls hans.


 


back to top