Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Haustfundur hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldinn í félagsheimili Sleipnis, Hliðskjálf á Selfossi (í hesthúsahverfinu, Suðurtröð), miðvikudaginn 17. október kl. 20:00.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ónæmisfræðingur og Vilhjálmur Svansson, dýralæknir, munu kynna stöðuna á sumarexem rannsókninni en HS samþykkti á aðalfundi sínum árið 2011 að styrkja þessa rannsókn um 6.000.000 kr.
Guðlaugur Antonsson landsráðunautur í hrossarækt mun verða með erindi sem hann kallar „Hrossarækt og hestamennska –staða og framtíðarsýn.
Þórdís Erla Gunnarsdóttir mun kynna skýrslu starfshóps. Á síðasta aðalfundi HS var skipaður starfshópur til að fjalla um aðkomu kynbótahross að landsmótum.
Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Kaffi og meðlæti í boði samtakanna.

Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands


Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Haustfundur hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldinn í félagsheimili Sleipnis, Hliðskjálf á Selfossi (í hesthúsahverfinu, Suðurtröð), miðvikudaginn 17. október kl. 20:00.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ónæmisfræðingur og Vilhjálmur Svansson, dýralæknir, munu kynna stöðuna á sumarexem rannsókninni en HS samþykkti á aðalfundi sínum árið 2011 að styrkja þessa rannsókn um 6.000.000 kr.
Guðlaugur Antonsson landsráðunautur í hrossarækt mun verða með erindi sem hann kallar „Hrossarækt og hestamennska –staða og framtíðarsýn.
(meira…)


Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldinn í félagsheimili Hestamannafélagsins Sleipnis, Hliðskjálf þriðjudaginn 19. október nk. kl. 20:00. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands verður með framsögu á fundinum. Einnig munu Hulda Gústafsdóttir og Gunnar Arnarson upplýsa menn um horfur á útflutningi hrossa í haust.
(meira…)


Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldinn í Þingborg fimmtudaginn 16. október  nk. kl. 20:00. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ verður með framsögu á fundinum. Einnig mun Hreggviður Þorsteinsson mæta á fundinn og fjalla um mismunandi eignarhald á stóðhestum.

(meira…)


back to top