Haustfundir í sauðfjárrækt 2014

Nú fer að styttast í árlega haustfundi sauðfjárræktarinnar, en þeir verða haldnir á fjórum stöðum í næstu viku. Byrjað verður á Kirkjubæjarklaustri á Icelandair hótelinu fimmtudaginn 20. nóvember. kl. 13.00. Um kvöldið verður svo fundur á Hótel Smyrlabjörgum kl.20.00.  Föstudaginn 21.nóvember verður svo byrjað í félagsheimilinu Heimalandi undir Eyjafjöllum kl. 14.00 og að lokum verður fundur kl. 20.00 í Þingborg.

Fanney Ólöf Lárusdóttir fer yfir hauststörfin. Sveinn Sigurmundsson fjallar um starfsemi Sauðfjársæðingastöðvar Suðurlands og hrútakostinn. Páll Stefánsson dýralæknir fjallar um fanghlutfall, frjósemi og lungnasjúkdóma í sauðfé.  Endað verður á verðlaunaveitingum hrúta eftir kaffihlé. Verðlaun fyrir lambhrúta eru gefin af Fóðurblöndunni og Blup-verðlaun eru gefin af Jötunn vélum ehf.

Kaffiveitingar í boði Sláturfélags Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands

Nýútgefinni HRÚTASKRÁ verður dreift á fundunum

Sauðfjárræktarfólk hvatt til að mæta.


back to top