Hægt að baka úr íslensku heilhveiti með haustinu

Íslenskt heilhveiti kemur á markaðinn í haust. Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, hefur ræktað það um árabil en hingað til aðeins notað það sem skepnufóður.
Ólafur hefur kynnt sér hveitirækt í Noregi og Svíþjóð og gert eigin tilraunir til að athuga hvaða afbrigði henta best.

Hann sáði hveiti í fjóra hektara lands í fyrra en í ár ætlar hann að sá í sex hektara. „Tilraunir í byggrækt hafa skilað okkur hentugri tegundum og þetta á að vera hægt í hveitinu líka,“ segir Ólafur.

Þess má geta að Ólafur mun kynna íslenska hveitið á Landbúnaðarsýningunni um næstu helgi.


 


back to top