Verð á greiðslumarki

Frá 1. desember 2010 hefur verið starfræktur tilboðsmarkaður með greiðslumark í mjólk samkvæmt reglugerð nr. 190/2011. Matvælastofnun hefur umsjón með framkvæmd markaðarins og á heimasíðu stofnunarinnar er að finna niðurstöður hans.

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk 1. nóv. 2012 – MAST

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk 1. apríl 2012 – MAST

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk 1. nóv. 2011 – MAST

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk 1.apríl 2011 – MAST

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk 1. des. 2010 – MAST

Fyrir tilkomu tilboðsmarkaðar með greiðslumark birtu Bændasamtökin mánaðarlega þróun á verði greiðslumarks mjólkur, eftir þeim upplýsingum sem koma fram í samningum sem fylgja tilkynningum um aðilaskipti að greiðslumarki sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 523/2004.

Birtingin miðaðist við að á hverjum tíma væri birt verð sem miðast að lágmarki við 500 þúsund lítra.

Fyrir hina mánuðina er byggt á að lágmarki 500 þúsund lítrum. Nái samanlögð sala tveggja mánaða ekki því lágmarki eru teknar með yngstu sölur í næsta mánuði á þar á undan.

 

Hafa verður í huga að sumir samningar um sölu á greiðslumarki taka til sölu á greiðslumarki sem er til nýtingar á yfirstandandi verðlagsári og síðasta eða komandi verðlagsári.

Verð á greiðslumarki 2004-2010  – Bændasamtök Íslands.

back to top