Fundur um nýtt sýningarform kynbótahrossa á komandi landsmóti

Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands boðar til fundar 15. febrúar 2012 kl. 20:00 í Ölfushöllinni um nýtt sýningarform kynbótahrossa á komandi landsmóti.
Efni fundarins er ákvörðun fagráðs um nýja útfærslu á kynbótasýningum á landsmóti 2012. Eins og kunnugt er ákvað fagráð á desemberfundi sínum að ferðum í dómi verði fækkað úr 10 ferðum í 8 og í stað hefðbundinnar yfirlitssýningar færi yfirlitssýning að mestu fram á hringvelli, þ.e riðnir þrír hringir og ein ferð á beinni braut.
Töluverð óánæja viðist vera með þessa ákvörðun fagráðs og því ákvað stjórn HS að boða til fundar þar sem Kristinn Guðnason formaður fagráðs og Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðanautur myndu mæta og gera fundarmönnum grein fyrir ástæðu þessara breytinga og svara fyrirspurnum fundarmanna.

F.h stjórnar
Sveinn Steinarson, formaður.


back to top