Fundur í stjórn Stóra Ármóts ehf. 29. mars 2010

Fundur í stjórn Stóra Ármóts ehf haldinn 29.03.2010

Fundinn sem haldinn var Selfossi sátu, Guðbjörg Jónsdóttir formaður, Guðni Einarsson, Ragnar Lárusson, Egill Sigurðsson, Gunnar Eiríksson og Sveinn Sigurmundsson framkvæmdastjóri. Á fundinn eru mættir Arnór Eggertsson endurskoðandi, Ólafur Þ. Þórarinsson bókari og skoðunarmenn Ólafur Kristjánsson og Hrafnkell Karlsson.

1. Sveinn fór yfir starfsemina og útskýrði ársreikninginn. Í heild sinni gekk búrekstur vel.


2. Ársreikningur 2009. Rekstrartekjur námu alls 44,4 milljónum króna. Eigið fé samkvæmt efnahagsreikningi er í árslok 48,2 milljónir. Á árinu 2009 var hagnaður 4 milljónir króna. Stjórn Stóra Ármóts ehf leggur til að hann verði færður til hækkunar á eigin fé eins og fram kemur í skýringum ársreiknings. Stjórn Stóra Ármóts ehf og framkvæmdastjóri staðfesta hér með ársreikning ársins 2009 með undirritun sinni.


3. Reikningurinn þá borinn undir aðalfundinn og samþykktur samhljóða


Fundi slitið.


Guðni Einarsson


back to top