Fundað um stöðuna á Selfossi í kvöld

Í kvöld mun landbúnaðarráðherra funda á Selfossi með hluta samráðshóps ráðuneytisins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. „Ljóst er að eftir því sem að eldgosið og tilheyrandi öskufall dregst á langinn er mögulegt að grípa þurfi til mun umfangsmeiri aðgerða vegna landbúnaðar á svæðinu en áður var talið. Sérstaklega þarf að skoða stöðu sauðfjábænda þar sem að sauðburði er víða að ljúka en allt fé enn á húsi sem ekki getur gengið til lengdar. Bregðast þarf strax við þessari stöðu sem upp er komin,“ segir í tilkynningu.

Auk Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðherra, munu Jóhann Guðmundsson aðstoðarmaður ráðherra, SIgurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Halldór Runólfsson yfirdýralæknir, Sveinn SIgurmundsson framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, Sveinn Runólfsson landgræslustjóri og Elvar Eyvindsson sveitarstjóri Rangárþings-eystra mæta á fundinn.


Þar verður farið yfir stöðu mála og mögulegar aðgerðir ræddar, sem til framkvæmda  geti komið á næstunni og snerti landbúnað á þeim svæðum sem orðið hafa verst úti.


back to top