Fræðslufundur FKS

Þann 12. janúar mun Félag kúabænda á Suðurlandi halda fræðslufund. Fundurinn verður í sal MS Selfossi og hefst kl 14.00. Aðalefni fundarins verður um erfðamengisúrval (genomic selection).

Guðmundur Jóhannesson ráðunautur í nautgriparækt mun segja frá verkefni þessu tengdu sem er að byrja, möguleikum á flýtingu erfðaframfara og svara spurningum.

Fundurinn er í framhaldi af fundi félagsráðs FKS og er opinn kúabændum.

Stjórn Félags kúabænda á Suðurlandi.


back to top