Fræðslufundur Félags kúabænda á Suðurlandi

Fræðslufundur Félags kúabænda á Suðurlandi og Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins verður haldinn fimmtudaginn 14. nóvember kl. 13.30 í fundarsal MS að Austurvegi 65 á Selfossi.

Dagskrá:

  1. Meiri mjólk – staða og horfur.  Guðmundur Jóhannesson nautgriparræktarráðunautur RML
  2. Meiri mjólk – betri fóðrun. Hrafnhildur Baldursdóttir og Jóna Þórunn Ragnarsdóttir, fóðurráðgjafar hjá RML

Fundarstjóri verður Valdimar Guðjónsson formaður Félags kúabænda á Suðurlandi. 

Sunnlenskir kúabændur eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum. 


back to top