Fræðslufundur Félags kúabænda á Suðurlandi

Mánudaginn 17. nóvember kl. 13.30 verður fræðslufundur Félags kúabænda á Suðurlandi og Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins í fundarsal Auðhumlu að Austurvegi 65 Selfossi.  Fundarefnið er „Betri bústjórn“ Þar mun Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður nautgriparæktar hjá RML ræða stöðuna í framleiðslumálum og nýting skýrsluhalds,  Jóna Þórunn Ragnarsdóttir – fóðurráðunautur RML mun fjalla um val á fóðurblöndum m.t.t. heysýnaniðurstaðna, eins mun Runólfur Sigursveinsson,fagstjóri rekstrar hjá RML ræða rekstur og fjármögnun á kúabúum .

Kúabændur eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum !

Stjórn Félags kúabænda á Suðurlandi


back to top