Frá Degi sauðkindarinnar á Hvolsvelli

Dagur sauðkindarinnar var haldinn var í Skeiðvangi á Hvolsvelli þann 15. október s.l. og var þetta í fjórða sinn sem dagurinn er haldinn. Fjölmenni kom á sýninguna og var glatt á hjalla. Úrslit voru eftirfarandi:


















Lambhrútar
1. Nr. 326 frá Hlíðarendakoti
Stig alls: 90 BML: 38,5 40 mm bakvöðvi

2. Nr. 621 frá Teigi I undan veturg. á
Stig alls: 87,5 BML: 37,5 38 mm bakvöðvi


3. Nr. 502 frá Kaldbak
Stig alls: 88 BML: 37,5 35 mm bakvöðvi


Jón Örn með efsta lambhrútinn.


Þrír efstu lambhrútarnir.

Veturgamlir hrútar
1. Barði frá Ausvaðsholti frá Jóni Benediktssyni
Stig alls: 88 BML: 39 – 19,5 f/læri 39 mm bakvöðvi


2. 488 frá Árbæjarhjáleigu frá Kristni Guðnasyni
Stig alls: 88 BML: 37,5 38 mm bakvöðvi


3. Glanni frá Meiri-Tungu frá Katli Gíslasyni
Stig alls: 87,5 BML: 37 39 mm bakvöðvi


Jón í Austvaðsholti með efsta veturgamla hrútinn.


Efstu veturgömlu hrútarnir.

Gimbrar
1. Nr. 79 frá Hemlu II
Bakv: 40 mm framp: 9 Læri: 19


2. Nr. 103 frá Vestra-Fíflholti
Bakv: 32 mm framp: 9 Læri: 19


3. Nr. 2 frá Vestra-Fíflholti
Bakv: 39 mm framp: 9 Læri: 18,5


Lovísa og Vignir á Hemlu með efstu gimbrina.
Áhorfendur kusu litfegursta lambið arnsokkubotnótta gimbur frá Hörpu Rún Kristjánsdóttur á Hólum.
Harpa Rún með litfegurstu gimbrina.
Ræktunarbú ársins 2010 var valið Kalbakur og áttu þau einnig afurðahæstu ánna, Hæ-Krumpu 06-098 frá Kaldbak
Sigríður og Viðar á Kaldbak með verðlaun fyrir ræktunarbú sýslunnar og afurðahæstu ánna.


Verðlaunin voru útskornir af Ragnhildi Magnúsdóttir í Gígjarhólskoti og málverk fyrir litfegursta lambið eftir Gunnhildi Jónsdóttur í Berjanesi.


back to top