Fimm nýir búnaðarþingsfulltrúar

Aðalfundi Búnaðarsambandsins lauk fyrir skömmu. Á fundinum virtist ríkja mikil sátt um rekstur Búnaðarsambandsins og menn ánægðir með stöðu þess. Varðandi sameiningu ráðgjafaþjónustunnar kom fram að menn eru nokkuð ánægðir með þau áform en flestir vilja flýta sér hægt og vanda vel til verka.
Á fundinum fór fram kjör fulltrúa til búnaðarþings og þar urðu þau tíðindi að fimm nýir fulltrúar voru kjörnir. Eftirtaldir hlutu kosningu:
Guðbjörg Jónsdóttir Læk, Guðrún Stefánsdóttir Hlíðarendakoti, Gunnar Kr. Eiríksson Túnsbergi, Oddný Steina Valsdóttir Butru, Ólafur Þ. Gunnarsson Giljum, Stefán Geirsson Gerðum og Þórir Jónsson Selalæk.

Egill SIgurðsson gaf ekki kost á sér til setu í stjórn Búnaðarsambandsins og í hans stað var kjörinn Erlendur Ingvarsson í Skarði. Ragnar M. Lárusson í Stóradal var endurkjörinn í stjórn með miklum meirihluta atkvæða.


back to top