Eldvirkni í þremur gígum

Í flugi sérfræðinga með Landhelgisgæslunni eftir hádegi í gær kom í ljós að talsvert gos er í gangi, eldvirkni er enn í þremur gígum sem ennþá virðast vera aðskildir. Gosmökkurinn er lítill og ljós sem bendir til að gjóska sé ekki mikil í honum, segir í yfirliti frá Samhæfingarstöð. Gjóskan úr eldstöðinni virðist hlaðast upp á brúnina og mynda þar hrygg.
Kleprar úr sprengingum í gígunum náðu í um 1,5 – 3 km hæð í gærmorgun. Ekkert hraunrennsli var frá gígunum. Sunnar náðu öskuskýin í um 5-6 km hæð. Ekki var hægt að merkja hraunrennsli frá gosinu, hvorki til norðurs né suðurs. Hætta á hlaupi er ekki til staðar vegna sírennslis vatns niður jökulinn.

Lítið sem ekkert öskufall var á Heimalandi við vesturenda Eyjafjalla í gær en strax austur við Ásólfsskála var skyggni komið niður í 70 metra um miðjan dag og í Varmahlíð var skyggnið 100 – 150 metrar. Um er að ræða sambland af öskufalli og öskufjúki en talsverður strekkingur var á svæðinu í dag.


Veðurspá gerir ráð fyrir að vindátt muni breytast á fimmtudag og verða austanstæð en gert er ráð fyrir hægum vindi og rigningu sem dregur verulega úr líkum á öskufalli. Í gær voru 7 hópar björgunarsveita að störfum á svæðinu, bæði heimamenn og sveitir frá Vesturlandi, Snæfellsnesi og Suðurnesjum. Björgunarsveitarmenn hafa m.a. aðstoðað við ýmis verkefni, svo sem smölun á búfénaði.


 


back to top