Dregið hefur úr gosvirkni

Dregið hefur úr virkni gossins í Eyjafjallajökli og gosmökkurinn hefur lækkað undanfarna daga. Það bendir til þess að verulega hafi dregið úr kvikuflæði miðað við lok síðustu viku. Mökkurinn náði í gær upp í um fimm kílómetra hæð og er kvikuflæðið talið vera vel undir 50 tonnum á sekúndu, að því er kom fram í stöðuskýrslu Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar HÍ í gær. Þar sagði jafnframt að enn mætti búast við sveiflum í gosvirkninni með breytilegu gjóskufalli. Í gær féll töluverð aska innst í Fljótshlíð, einkum í Fljótsdal.
„Þetta er í þriðja skiptið sem dregur úr gosinu. Það er fullkomlega ómögulegt að segja hvort þessi lækkun er sú síðasta eða ekki,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson prófessor spurður hvort gosið í Eyjafjallajökli væri að fjara út að því er fram kemur á mbl.is.


back to top