Áhugavert

Tenglar

Búrekstur > Bændabókhald BSSL > Staðgreiðsla 2009 >

Staðgreiðsla 2009

Skatthlutfall í staðgreiðslu
Skatthlutfall í staðgreiðslu er 37,2%. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1994 eða síðar, er 6% af tekjum umfram frítekjumark barna sem er kr. 100.745

Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er kr. 506.466 á ári, eða kr. 42.205 á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2009.

Einn mánuður kr. 42.205
Hálfur mánuður kr. 21.103
Fjórtán dagar kr. 19.426
Ein vika kr. 9.713

Ef launatímabil er annað en að ofan greinir skal ákvarða persónuafslátt þannig:
506.466 / 365 x dagafjöldi launatímabils

Sjá nánar um persónuafslátt 

Hér er að finna reiknivél  () en skrá þarf launafjárhæð, iðgjald í lífeyrissjóð og hlutfall persónuafsláttar sem það skattkort sýnir sem nýtt er hjá launagreiðanda.

Sjómannaafsláttur
Sjómannaafsláttur á árinu 2009 er kr. 987 á dag. Nánar um sjómannaafslátt 

Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrisiðgjald sem halda má utan staðgreiðslu er 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að auki að færa til frádráttar allt að 4% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd, enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Tryggingagjald
Tryggingagjald er óbreytt frá fyrra ári og er 5,34% og er þá meðtalið markaðsgjald og gjald í ábyrgðarsjóð launa. Sama gjaldstig er fyrir allar atvinnugreinar.
Tryggingagjald hækkar frá 1. júlí 2009 úr 5,34% í 7%.

Hjá útgerðum fiskiskipa vegna launa sjómanna bætast við 0,65% vegna slysatryggingar og er gjald þeirra alls 5,99% fyrir tímabilið janúar til júní. Frá 1.júlí 2009 er það 7,65%.

Sérstakur tekjuskattur (hátekjuskattur)
Stofn
Stofn til sér staks tekju skatts (hátekjuskatts) er sá sami og notaður er til að reikna hefðbundna stað greiðslu; tekjur að frá dregnu iðgjaldi í lífeyrissjóði.

Afdráttur staðgreiðslu
Á tímabilinu júlí-desember 2009 skal halda eftir 8% hátekjuskatti af stofni sem er umfram kr. 700.000 á mánuði. Skattinum skal halda eftir við útborgun launa og skila, ásamt annarri afdreginni stað greiðslu, til innheimtumanns.
Halda skal eftir stað greiðslu vegna hátekjuskatts miðað við tekjur í hverjum mánuði óháð því hverjar þær eru í öðrum mánuðum.


Mánaðarlaun 800.000
Iðgjald í lífeyrissjóð 32.000
Iðgjald í séreignarsjóð 32.000
=========
Stofn til staðgreiðslu 736.000
Viðmiðunarm. v/hátekjuskatts 700.000
=========
Stofn til hátekjuskatts 36.000
Álagningarhlutfall 8%
Hátekjuskattur 2.880

Orðsendingar
Orðsendingar um skatthlutfall og skattmat í staðgreiðslu  () eru gefnar út í byrjun janúar en þar koma fram ítarlegar upplýsingar um þessi atriði. Grunnupplýsingar um staðgreiðslu er að finna í orðsendingu nr. 1 á hverju ári.

Prenta þessa síðu